húsaleigulög.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir framsögu hæstv. ráðherra Ingu Sæland. Ég hef kynnt mér þetta ágætlega. Mér finnst sérstakt að ég finni fyrir því að ég sé í einhverjum flokki, að ég sé bendlaður við eitthvað. Það er ekki skemmtilegt og að það séu ásakanir ráðherra, sem koma þaðan. Ég vísa því til föðurhúsanna.
Virðulegur forseti. Með frumvarpi þessu er lagt til að skráningarskylda leigusamninga verði almenn, þ.e. að allir leigusalar, óháð umfangi eða atvinnurekstri, verði skyldugir til að skrá samninga sína í gagnagrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Það voru gerðar breytingar á reglum um breytingar á leigufjárhæð og skattalegum ívilnunum. Frumvarpið byggist á þeim markmiðum að efla húsnæðisöryggi, auka gagnsæi og bæta gögn um leigumarkaðinn. Allt þetta hljómar vel og örugglega margt alveg þokkalegt en maður skyldi samt sem áður fara vel í hluti sem eru að breytast því að öllum breytingum fylgja, eins og orðið segir, breytingar.
Skráningarskylda einstaklinga. Frumvarpið gerir ekki lengur greinarmun á leigusölum í atvinnurekstri og þeim sem leigja hér, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi, herbergi, eina, tvær íbúðir mögulega, tímabundið. Þetta mun hafa letjandi áhrif á framboð, akkúrat gegn því sem frumvarpið boðar, sérstaklega meðal minni leigusala. Það eru alls konar aðstæður sem skapast í fjölskyldunni þegar er verið að leigja húsnæði og það þarf að skrá allt og það getur grafið undan trausti í viðkvæmum aðstæðum þegar fjölskyldur eru að hjálpast að með húsnæði.
Svo eru það skattaívilnanir sem hafa ekki verið bundnar við það að þurfa að skrá húsnæðið, það hefur verið nóg að setja þetta í skattframtal. Þetta er eitthvað sem vonandi verður þá kynnt vel því að það eru alls konar leigusamningar uppi sem ekki er búið að pæla kannski í í langan tíma, þannig að vonandi verður kynningin á þessu góð. Frumvarpið felur í sér að leigusamningar frá 1. september 2025, að það verði í raun afturvirkt á alla samninga sem hafa verið gerðir. Það eru örugglega mjög margir samningar hingað og þangað um samfélagið sem hafa verið gerðir einhvern tímann og einhvern tímann, jafnvel á milli einstaklinga sem þekkjast. Fólk vonandi tekur eftir þessum breytingum því að annars geta sektir dunið á fólki, mögulega án þess að það geri sér grein fyrir því vegna þess að fólk er kannski ekkert að rýna í allt sem gerist hér á þinginu og eðlilega. Það er að vinna sína vinnu og er annars staðar í samfélaginu.
Aðgangur að upplýsingum — og það sem ég er að nefna núna er ekkert allt endilega vont, maður þarf bara að hugsa um það og gera þetta vel — með því að afnema undanþágu frá upplýsingalögum er dregið úr vernd gagna um einkamál fólks þótt vissulega sé enn hægt að meta beiðnir í samræmi við lög. En rök fyrir þessari breytingu mættu vera betur útfærð í því ljósi hversu persónulegar upplýsingar getur verið að finna í leigusamningum.
Það sem er svo kannski sérstakt í þessu er það að banna hækkun á leigu innan fyrstu 12 mánaða tímabundins samnings burt séð frá vísitölu. Það kann að þrengja að svigrúmi minni leigusala til að bregðast við verðlagsþróun. Þeir sem eru með hagfræði 101 sjá það alveg í hendi sér hvað gerist með leiguverð í þessum aðstæðum. Ef þú ert búinn að binda eitthvað án nokkurra hækkana í mögulega einhverju verðbólguverði eða það getur komið upp ófyrirséður kostnaður og það er ekki hægt að bregðast við honum í samningunum, þá er það bara gert í upphafi. Þetta hefur þá mögulega þau áhrif að bæði fækkar leiguhúsnæði og leiguverð hækkar, mögulega.
Hæstv. ráðherra Inga Sæland talaði um 37.000 manns og að mögulega væru tæp 30% á leigumarkaði en ekki 16%. Það einhvern veginn minnir mig á það að það er ekki gott að vera á markaði og vera ekki með samninginn sinn uppi á borðum. Ég skil það mjög vel en þetta er svolítið sama staða og maður er að glíma við í skólum. Það er eitthvað sem er að, sum börn hegða sér ekki vel eða það vantar eitthvað í leikskólann og þá er það ekki tilviljun endilega hvers vegna það er. Þeir foreldrar sem þyrftu að hlusta og þyrftu að hegða sér eftir því sem best verður á kosið gera það ekki. Í þessu óttast ég það að þetta muni ekki hafa sérstaklega mikil áhrif á þennan stóra hóp en það er vonandi hægt að mæla það ef þetta fer í gegn, þannig að við sjáum það bara og það verði gerðar mælingar á því hvort fólk flykkist inn í skráningar með sitt.
Það er margt gott þarna í þessu. Við viljum auðvitað útrýma því sem eru einhver hreysi, að leigja þau út. Það er alls ekki gott. En það er bara þetta sem ég hef ákveðnar áhyggjur af, að við séum að flækja málin fyrir heiðarlegum og góðum leigusölum, séum mögulega að bregða fyrir þá fæti en þeir sem ætla sér hvort sem er ekkert að gera haldi bara sínu striki. Það er lítill hvati í þessu, það er verið að setja hindranir hingað og þangað. Það er sjaldnast til ávinnings. Auðvitað er lykillinn að þessu öllu saman að fjölga húsnæði, fjölga leiguíbúðum. Það losar okkur úr þessu öllu sem við erum að reyna að gera með þessu frumvarpi.
Ég vona að það verði bara frekari umræða um þetta af því að þetta er mál sem getur verið að einhverju leyti til bóta en það þarf bara að skoða það vel.