156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[15:47]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Forseti. Mig langar aðeins að koma upp í andsvar við ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsen. Kannski er spurningin einfaldlega þessi: Hefur hv. þm. Jón Pétur Zimsen, og kannski fleiri fulltrúar stjórnarandstöðunnar úr Sjálfstæðisflokknum, eitthvað á móti því að hafa aukið gegnsæi í þessum málum? Það kom svolítið fram, beint og óbeint, að mögulega ætti að hlífa einhverjum ákveðnum aðilum í þessum bransa sem eru leigusalar; að vera ekki að flækja málin fyrir heiðarlegum leigusölum, ef ég er að orða þetta rétt. Þá er svolítið spurningin: Er ekki hægt að vera heiðarlegur leigusali þó að skráningarskylda sé á leigusamningi? Með því að hafa þessa almennu skráningarskyldu er markmiðið einmitt að fá þá alla upp á borð þannig að allt liggi á hreinu og ekki síst gagnvart leigjandanum sem ella væri mögulega án samnings og þyrfti að treysta á munnlegt loforð eða munnlegt samkomulag sem yrði þá orð gegn orði ef upp kæmi einhver ágreiningur. Þarna er svona grátt svæði sem væri gott að fá skýringu á. Hverjum er verið að hlífa? Hvaða aðilum úr samfélaginu sem eru að leigja er verið að hlífa með því að hafa þessar upplýsingar undir borði? Ég spyr hvort heiðarleiki sé ekki einmitt þegar allt er uppi á borði og hægt að sjá nákvæmlega hvernig landið liggur í þessum málum, svo að ekki sé minnst á réttaröryggi leigjendanna.