156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[15:50]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég mótmæli því nú að hafa verið að gera einhverjum eitthvað upp. Ég er að vísa einfaldlega í ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsen. Annað sem ég tók eftir varðandi hvernig hann orðaði hlutina er að með þessu sé ekki gerður greinarmunur á atvinnurekstri. Á að gera greinarmun á því? Á yfirhöfuð að gera einhvern sérstakan greinarmun þegar kemur að þeim sem leigja frá sér húsnæði? Ég hefði einmitt talið að það ætti alls ekki að gera. Það á enginn greinarmunur vera milli atvinnureksturs eða einhvers annars reksturs eða ættingja að leigja. Það bara skaðar ekki neinn af þessum aðilum, hvaðan sem þeir koma eða kalla sig, að hafa þessa hluti uppi á borði, svo ekki sé minnst á hversu mikið gott það er að hafa sterka og góða yfirsýn yfir hvernig landið liggur á leigumarkaði. Þetta gefur bara okkur hinum, ég tala nú ekki um stjórnvöldum eða þeim sem halda utan um þessi málefni, yfirsýn yfir hvar skórinn kreppir og líka hvernig landið liggur bara hvað varðar leiguverð, svo ekki sé minnst á húsnæði sem er óleyfishúsnæði en mikið af slíku húsnæði er undir borðum þar sem réttaröryggi leigjenda er ekki neitt. Hér er ég líka að vísa til húsnæðis sem er stórhættulegt hvað varðar öryggismál og brunavarnir og annað. Með þessu frumvarpi er verið að laga ótal marga hluti á þessu sviði og virkilega tímabært. Þetta var orðið betra en það þurfti að taka þetta lengra, gera þetta almennara og nú er það að gerast í dag, verið að mæla fyrir þessu frumvarpi, og ég fagna því.