húsaleigulög.
Frú forseti. Það er nú þannig að þetta frumvarp sprettur ekki upp úr tómarúmi heldur vegna þarfar. Það má segja það sama um 2. gr. frumvarpsins, þar sem verið er að tala um að leigufjárhæð á tímabundnum samningum breytist ekki fyrstu 12 mánuðina og maður hefði haldið að það væri eitthvað sem ekki þyrfti að deila um. Markaðurinn hefur verið grimmur og grimmur gagnvart þeim sem standa höllum fæti. Með þessu erum við ekki að blása upp bleik ský, við erum að koma á móts við raunveruleikann. Við erum að koma á móts við það að þeir sem leigja sér heimili — og við erum að tala um heimili, ég vil bara ítreka það. Við erum að tala um heimili fólks og við erum að treysta það að fólk hafi einhvern fyrirsjáanleika varðandi leigufjárhæð 12 mánuði fram í tímann. Það er ekki meira. Ég vonast því til þess að ágætar athugasemdir og sú umræða sem hér fer fram verði til þess að frumvarpið fái jákvæða umfjöllun í nefndinni því að eins og ég sagði í byrjun sprettur þetta af þörf. Við erum að koma á móts við þá sem standa höllum fæti með þessu frumvarpi og þess vegna er það sannarlega mikilvægt. Og ég held að við eigum líka að undirstrika það að við erum hér að ræða um íverustað og heimili fólks og jafnvel heilu fjölskyldnanna.