156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:00]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans andsvar öðru sinni. Ég er alveg á sama vagni og hv. þingmaður. Auðvitað vill maður að fólk, sérstaklega það sem er í veikri stöðu, hafi tryggt og gott heimili. Það sem ég hef einungis verið að ræða hér, þó að aðrir þingmenn hafi reynt að snúa út úr því með leiðinlegum hætti, er það að ég óttast að þegar við festum verðið til 12 mánaða sjái þeir sem eru að selja leiguna — að þeir reikni með einhvers konar heildarverði þann tíma og setji það sem upphafsverð. Hitt er það að íbúðum fækki mögulega og það er ekki gott fyrir þá sem standa höllum fæti. Ég vona að það sem ég er að segja rætist ekki, ég hef engan áhuga á því. En það er ekki gott fyrir neinn, hvað þá þá sem standa höllum fæti. Svona umræða er góð. Það er farið efnislega í hlutina. Mönnum eru ekki gerðar upp einhverjar annarlegar hvatir. Það er gott. Það er enginn, held ég, handhafi sannleikans hér inni, hvorki ég né aðrir. Ég vil bara aftur þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir málefnalega umræðu.