156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil hér við þessa 1. umræðu um breytingu á húsaleigulögum er varðar almenna skráningu leigusamninga og breytingu leigufjárhæðar leggja nokkur orð í púkkið. Ég held, ef ég byrja á að reyna að teikna upp stóru myndina, að við eigum að flýta okkur hægt hvað varðar þessa linnulausu sókn í þá átt að auka skráningu, eftirlit, utanumhald, flækjustig og þar fram eftir götunum í samfélaginu, eiginlega sama í hvaða átt við horfum hvað það varðar. Ég hef á tilfinningunni, eins og ég sagði í ræðu um þetta mál þegar það kom efnislega fram hjá fyrri ríkisstjórn, að frumvarpið eins og það liggur fyrir beri í sér hættu á að vera til ógagns hvað framboð varðar og mér sýnist þetta frumvarp eins og það liggur fyrir bæta við áhættuþætti sem varðar það að leiguupphæð leigutaka sé hærri en hún annars hefði orðið til langrar framtíðar, náist langtímasamband milli leigusala og leigutaka. Ég útskýri það á eftir hvernig á því stendur.

Hér í dag hefur ekki verið rætt neitt mál öðruvísi en að ræða drög ríkisstjórnarinnar að breyttum veiðigjöldum og ég ætla að prófa að tengja það inn í þetta mál. Hér segir, með leyfi forseta, í greinargerð undir meginefni frumvarps, tilefni og nauðsyn, um lög nr. 106/2004 sem voru samþykkt síðast, um breytingu á húsaleigulögum:

„Skv. 2. málsl. 3. mgr. 37. gr. gildandi laga er óheimilt að semja um að leigufjárhæð breytist á leigutímanum ef gerður hefur verið tímabundinn leigusamningur til 12 mánaða eða skemmri tíma.“

Hvaða áhrif kallaði þetta fram? Jú, leigusalar fóru að gera 13 mánaða leigusamninga. Þetta eru þessi afleiddu áhrif sem koma fram í öllum þeim frumvörpum sem við höndlum með hérna. Þetta eru bara sömu afleiddu áhrifin og munu koma fram á vinnslu landið um kring eftir breyttar reglur um veiðigjöld og þar fram eftir götunum. En ég fagna því sérstaklega og þess vegna vil ég nefna það að alla vega hluti ríkisstjórnarinnar, hæstv. ráðherra Inga Sæland í þessu tilviki, áttar sig á því að frumvörp, lagasetning, breytingar á lögum, hafa afleidd áhrif. Hér erum við að reyna að bregðast við þeim afleiddu áhrifum að einhverju marki. Og hver er þá leiðin? Það er að banna breytingu á leiguupphæð fyrstu 12 mánuði á tímabundnum leigusamningi. Ég dreg ekki í efa að það er jákvæð hugsun á bak við þetta. En ég held að niðurstaðan verði ekki góð fyrir leigutaka og nú ætla ég að útskýra af hverju.

Tökum leigusamning sem er gerður fyrir sirka ári síðan þegar verðbólga er 10%. Hann er tímabundinn leigusamningur til þriggja ára, það eru einhverjar aðstæður sem orsaka það. Það má ekki breyta upphæð leigusamnings fyrstu 12 mánuðina. Þá er leigan 100 og að sjálfsögðu mun leigusalinn segja, og leigutaka mun ekki þykja það ósanngjarnt, að leigan verði 105. Þá bara jöfnum við út, skiptum milli okkar því sem hefði orðið verðtrygging þessarar leiguupphæðar fyrstu 12 mánuðina og við höfum leiguna 105 fyrstu 12 mánuðina. En þá kemur 13. mánuðurinn og eftir eru allir mánuðirnir upp í 36. Þá er grunnurinn 105 en ekki 100 eins og hann hefði verið annars þannig að þarna læsum við inni tjón fyrir leigutaka sem engin þörf er á að gera. Ég held að það sé á misskilningi byggt hjá hæstv. ráðherra að þetta verði endilega til gagns fyrir þá sem leigja húsnæði.

Ef við færum þetta — nú er ég að hugsa upphátt, það gæti verið að ég endi úti í mýri með þetta — og segjum sem svo að við séum með bílalán sem er tekið til fimm ára. Eigum við að banna að hafa það verðtryggt fyrstu 12 mánuðina en það megi vera verðtryggt frá 12. mánuði til mánaðar nr. 60? Ég held að við verðum að ætla fólki það að átta sig á áhrifum verðlagsþróunar. Launaþróunin fylgir sem betur fer gegnumgangandi með og rúmlega það. Þannig að ég held við ættum að fara varlega í þessa tilteknu breytingu vegna þess að hún getur læst inni, eins og ég segi, hærra leiguverð til lengri tíma.

Gefum okkur það að þessi leiguaðili byrji á að gera leigusamning til þriggja ára. Það er einhver í námi erlendis og kemur síðan heim, við þekkjum það, það eru óteljandi sögur í samfélaginu um það hvernig raunheimar atvikast. Síðan er sambandið gott og það hentar leigusala og leigutaka og menn gera samning til lengri tíma, ótímabundinn jafnvel í framhaldi af þriggja ára tímabilinu. Áfram eru menn fastir inni með 5% hærri grunn en raunverulega hefði verið gert ef samningurinn hefði verið verðtryggður, vísitölubundinn á fyrsta mánuði. Ég ætla að láta þetta duga hvað þetta varðar. Ég vil bara benda á að það er ekki víst að þetta tiltekna atriði verði leigutökum til gagns.

Síðan vil ég koma inn á það sem ég óttast að verði áhrif þessa frumvarps. Ég er ekki að neinu marki að tala fyrir því eða mæla því bót að menn eða fyrirtæki gangi fram með óforsvaranlegum hætti í útleigu misgóðra íbúðareininga. Það er ekki málið. En ég óttast það að þegar menn ganga með lagasetningu lengra en þörf er á og skynsemisrök hníga að, hvað varðar skráningu, eftirlit, heimildir til álagningar dagsekta og þar fram eftir götunum og sérstaklega hart er fram gengið í þeim efnum, þá dragi það úr framboði. Það eru í öllu falli engar líkur á að það ýti undir framboðið, sú þróun er útilokuð á grundvelli akkúrat þessa afmarkaða þáttar frumvarpsins. Einu valkostirnir eru óbreytt framboð eða minna. Og ef maður skoðar þetta út frá raunheimum þá er ekki víst að það hafi stórkostleg áhrif í umfangi, en það er mjög líklegt að niðurstaðan verði minna framboð en annars hefði orðið.

Þetta er það sem ég vildi halda til haga hér við 1. umræðu þessa frumvarps. Ég fagna því að ríkisstjórnin átti sig á og gangist við því og skrifi það meira að segja í greinargerð með frumvarpinu að áhrif breytinga á lögum eru líka afleidd á tengda þætti, ekki bara þröngt á það sem málið fjallar um. Ég hef áhyggjur af því að þessi mikla skráningarskylda dragi úr framboði.

Ég held að við verðum að gera meira af því hér inni að nálgast mál þannig að fólk sem til að mynda er að leigja út staka íbúð í stærra húsi eða hvernig sem því kann að vera háttað sé bærilega innréttað og þenkjandi. Ég held að vandamálin sem við fáum fréttir af reglulega er snúa að óforsvaranlegu húsnæði og þar fram eftir götunum leysist ekkert með svona málum. Sá markaður sem er undir yfirborðinu, sá svarti eða hvað við köllum það, verður til áfram hér eftir sem hingað til, rétt eins og á öðrum sviðum samfélagsins. Það sem mér finnst mjög líklegt að sé meginhvatinn til þessarar framlagningar málsins og þeirra verkefna sem hér eru römmuð inn — ég held að þetta mál leysi ekki það vandamál sem ég held að hér í salnum séu öll sammála um að sé til staðar er varðar óforsvaranlegt leiguhúsnæði.

Ég læt þetta duga hér við 1. umræðu. Ég vona að hv. nefnd takist vel til með meðhöndlun þessa máls. Ég bara bendi á það í lokin varðandi mat á áhrifunum, ég ætla ekki að fara út í niðurstöðuna á jafnréttisáhrifamatinu, að það er talað um að kostnaður vegna skráningar leigusamninga og birtingar upplýsinga úr leiguskrá húsnæðisgrunns, m.a. markaðsleigu, sé talinn óverulegur. Það er auðvitað af því að kostnaðurinn féll til árið 2022 með breytingum sem voru gerðar á regluverkinu þá. Allt innifelur þetta kostnað sem lendir auðvitað hvergi annars staðar en á skattborgurum og eftir atvikum þeim sem undir eru í þeim einkaréttarlegu samningum sem hér fjallað um. Ég vil bara halda því til haga.

Ég sé að ég er kominn í gegnum punktana sem ég ætlaði að nefna hérna. Ég óska hv. nefnd velfarnaðar í meðförum málsins og hef lokið máli mínu.