húsaleigulög.
Frú forseti. Þetta var áhugaverð ræða og það sem vakti sérstakan áhuga minn var að komið var inn á veiðigjöldin og því blandað saman við fyrirsjáanleika hvað varðar 12 mánuði fyrir tímabundna leigu. Það sama hefur komið fram í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar hvað varðar veiðigjöldin, að þetta sé ekki nægilegur fyrirsjáanleiki núna. Ef frumvarpið sem hér hefur verið til umræðu verður að lögum munu gjöldin hækka 1. janúar á næsta ári og munu haldast óbreytt út árið, gæti ég trúað. Þetta er ekki nægjanlegur fyrirsjáanleiki en ef fólkið sem er í leiguhúsnæði á að hafa 12 mánaða fyrirsjáanleika hvað varðar leiguverð þá er það of mikill fyrirsjáanleiki fyrir þessa ágætu leigjendur. Mér finnst eitthvað skrýtið við þetta. Þetta hljómar hálfundarlega í mínum eyrum. Síðan kemur ákveðin vantrú, hér kemur fram frumvarp og tæki til að taka á þessu, en þá er viðhorfið að þessi vandamál verði alltaf til staðar og hvað sem verður gert þá muni ekkert duga. Þetta voru einhvern veginn þau viðhorf sem blöstu við, það var ekki nægjanlegur fyrirsjáanleiki fyrir auðugustu menn landsins en síðan var of mikill fyrirsjáanleiki fyrir þá sem þurfa að nýta sér leiguhúsnæði.