húsaleigulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni andsvarið. Hv. þingmaður hefði kannski átt að hlusta meira og hrista hausinn minna undir ræðu minni því að hann virðist hafa misskilið allt sem ég sagði. Ég var ekki í neinu samhengi að tala um fyrirsjáanleika í þessum efnum. Ég var að tala um mat á afleiddum áhrifum frumvarpa. Það er allt annað. Ég ætla svo sem ekki að útskýra það frekar, það bara blasir við. Það er bara allt annað mál, allt annað efnisatriði sem ég var að ræða hér, hv. þingmaður. Ég er ekki viss um að það sé fleira sem ég þarf að bregðast við í andsvari hv. þingmanns. En þetta er lykilatriði og ég hef ákveðnar áhyggjur af því að hv. þingmaður misskilji þetta svona rækilega. Ég er ekki í neinu samhengi að tala um fyrirsjáanleika. Ég var að færa fyrir því rök að leiguupphæð leigutaka yrði hærri, uppsafnað, en annars hefði orðið með innleiðingu þessara reglna. Ég bara vona að hv. þingmaður stilli miðið betur fyrir seinna andsvar og ég hlakka til að koma hér upp og svara því.