156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:16]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Frumvarpið fjallar um fyrirsjáanleika fyrir leigjendur, að þeir hafi fyrirsjáanleika um að leigan hækki ekki í 12 mánuði og hv. þingmaður sá alla meinbugi á því. Það er auðvitað æðiundarlegt að fyrirsjáanleiki fyrir leigjendur sé allt í einu talinn vera eitthvað sem getur komið þeim í koll og jafnvel hækkað leigu. Mér finnst þetta vera undarlegt viðhorf og ég er viss um að þeir sem hlýða á þessar vangaveltur hv. þingmanns taka ekki undir það að fyrirsjáanleikinn fyrir leigjendur sé stórhættulegur þegar dæmin sýna að leigan hefur hækkað hjá þeim sem hafa umrædda samninga um tugþúsundir króna á umræddu leigutímabili. Ég held að Miðflokkurinn í heild sinni ætti að endurskoða þessa afstöðu sína, að fyrirsjáanleikinn eigi aðeins að vera fyrir þá sem eru ofan á í samfélaginu en síðan þegar verið er að koma hér með tæki fyrir þá sem eru í leiguhúsnæði sé það jafnvel talið stórvarasamt og geti jafnvel komið leigjendunum í koll sem er verið að rétta hjálparhönd með þessu frumvarpi.

Það má spyrja, vegna þess að það hafa komið hér alls kyns vangaveltur í tilefni þessa litla frumvarps sem er að vísu stórt fyrir leigjendur: Telur hv. þingmaður að það muni jafnvel verða þannig að fólk muni fara með þessar eignir af leigumarkaði og selja þær? Eða hvaða fleiri hættur sér hann af því að leigjendur og fjölskyldur þeirra hafi fyrirsjáanleika hvað varðar leiguverð fyrir heimili sín 12 mánuði fram í tímann? Það er ótrúlegt að hlusta á þetta, ótrúlegt að menn sjái stórhættu af þessu.