156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ekki var miðið betur stillt í seinni atrennu. Svo ég reyni nú að ná utan um þetta þá kom hv. þingmaður inn á það í fyrra andsvari sínu að ég hefði verið að tala um mikilvægi fyrirsjáanleika í tengslum við veiðigjöld. Ég var ekki að því. Hv. þingmaður getur bara hlustað á ræðu mína hér á eftir. Þetta er annað atriðið. Hitt atriðið er að hv. þingmaður heldur því fram að ég sé að gagnrýna það eða draga úr mikilvægi þess að leigutakar hafi fyrirsjáanleika. Aftur misskilur hv. þingmaður ræðu mína fullkomlega, það er eiginlega óskiljanlegt, en kannski skýrist það af einhverjum ástæðum. Það sem ég er að benda á hér er að það er ekki útgjaldalaust, sá fyrirsjáanleiki er ekki ókeypis heldur getur hann haft áhrif á grunnverð leigusamnings sem getur lifað til langrar framtíðar. Það er kostnaðurinn sem ég er að benda á. Og það að hv. þingmaður fari að brigsla mér um það að ég telji óþarfa að fólk á leigumarkaði hafi fyrirsjáanleika í samhengi við þetta (Gripið fram í.) er alger og óskiljanlegur útúrsnúningur. Ég bara hvet hv. þingmann til þess að fara nú að tölvunni sinni og hlusta á það sem ég sagði hér áður en hv. þingmaður óskar eftir því að koma hér í andsvar við mig.