húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Þegar lögin voru sett varðandi 12 mánuðina árið 2024 þá voru áhyggjur af því að leigusalar myndu breyta formi skammtímaleigusamninga og hafa þá bara 13 mánuði til þess að geta innheimt hærri og meiri gjöld af leigjendum sínum. Mér finnst frumvarpið í sjálfu sér taka ágætlega á þessu með því að banna hækkun fyrstu 12 mánuðina til að koma í veg fyrir að leigusalar sem eru hvað forhertastir í okri á venjulegu fólki sem reynir að komast af á oft kröppum kjörum. En það sem meira skiptir í þessu máli er að þetta snýst ekki bara um hvort leigusali geti hækkað verð á leigunni í einhverja 12 mánuði eða ekki. Þetta snýst líka um það að búa til hvata inni í kerfinu til þess að leigusali myndi langtímaleigusamband við leigjendur, vegna þess að eitt stærsta og líklegast eitt alvarlegasta félagslega vandamál sem við tökumst á við í dag er húsnæðis- og búsetuóöryggi. Við horfum á fjölskyldur fara sveitarfélaga á milli með börn á grunnskólaaldri sem ná sjaldnast að festa rætur vegna þess að þær komast ekki í fast langtímaleigusamband við leigusala. Þannig væri tryggt ekki bara búsetu- og húsnæðisöryggi heldur líka öryggi fyrir fjölskyldur. Verðið er eitt en búsetuskilyrðin og búsetuöryggi er annað. Upphaflegt markmið með þessari lagabreytingu á sínum tíma var að búa til nauðsynlega hvata fyrir langtímaleigusamband. Þarna er í rauninni bara verið að koma í veg fyrir að forhertustu leigufélögin á markaði geti sniðgengið það með því að bjóða 13 mánaða leigusamninga.