156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnari Þór Ingólfssyni andsvarið. Ég skil alveg hugsunina á bak við þessa breytingu sem var gerð 2024 eða réttara sagt ég skil markmiðið sem viðhaft var. En sömuleiðis má segja að eftir á blasi við með hvaða hætti menn sem vildu viðhafa verðtryggða leigusamninga myndu nálgast þetta. Þetta er bara partur af því sem ég kom inn á í ræðu minni um afleidd áhrif og það hvernig fólk og fyrirtæki bregðast við breyttum lögum hverju sinni. Það velkist enginn í vafa um mikilvægi húsnæðisöryggis í öllu tilliti í samfélaginu. Ég hef áhyggjur af því, eins og ég kom inn á hér áðan, að þetta frumvarp eins og það liggur fyrir — möguleg áhrif eru þrenns konar; aukið framboð leiguhúsnæðis, óbreytt framboð eða það dregur úr því. Fleiri eru valkostirnir ekki. Við erum held ég sammála því, ég og hv. þingmaður. Ég held að það sé ekkert í þessu frumvarpi sem eykur framboð á leiguhúsnæði. Ég held að það sé útilokað. Þá eru eftir valkostirnir að framboðið verði óbreytt eða að það dragi lítillega úr því. Mér finnst því miður líklegast að þessi nálgun dragi lítillega úr því. Það verður ekki stór breyting í heildarmyndinni en einhver. Ég held að það mikilvægasta sem við getum gert til að auka búsetuöryggi fólks sé að auka hvata til þess að húsnæðisuppbygging verði meira í takt við það sem þörf er á. Þó að við sjáum ekki hérna yfir Vonarstrætið þá held ég að Reykjavíkurborg verði að taka sinn póst af þeirri skömm. Nú er flokkur hv. þingmanns auðvitað kominn í meiri hluta þar þannig að ég vona að bót og betrun verði hratt, (Forseti hringir.) en það er það mikilvægasta sem við getum horft til hvað aukið búsetuöryggi varðar.