156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Eins og hæstv. ráðherra sagði í ræðu sinni áðan eða í svari við andsvari, með leyfi forseta:

„Við erum í ríkisstjórn í dag og þetta frumvarp er sem sagt að verða að lögum.“

Hv. þingmaður virðist því ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að meiri hlutinn samþykki frumvarpið ekki eins og það liggur fyrir. (Gripið fram í.) Ég er bara að benda á þessar hættur sem ég tel að liggi í málinu eins og það liggur fyrir. Ég er mikill áhugamaður um húsnæðisuppbyggingu. Ég starfaði í þeim geira áður en ég kom inn á þing og tel að til þess að ná árangri hvað aukið húsnæðisöryggi varðar og alla þá félagslegu fótfestu sem því fylgir séu miklu mikilvægari atriði í þeim efnum og líklegri til að skila árangri heldur en svona bírókratísk skráningaræfing sem ég verð að viðurkenna að ég hef ekki sannfæringu um að skipti mjög miklu máli. Aðgengi að leigusamningum hefur verið býsna gott og mikið í gegnum tíðina á grundvelli þinglýstra leigusamninga. Ég held því að hér sé verið að flækja kerfið okkar, auka skriffinnsku án þess að það sé líklegt að neinn raunverulegur árangur sem skiptir máli náist á grundvelli þeirrar aðgerðar.

Ég ítreka það sem ég sagði áðan, að einu áhrifin sem geta orðið af þessu held ég að séu lítils háttar samdráttur í framboði en það mun aldrei mælast í þessu. Það verður allt innan skekkjumarka í ljósi þess ef rétt er að hér séu 37.000 ótaldir gagnvart veru í leiguhúsnæði. (Forseti hringir.) Þá verður þetta alltaf ákveðnum skekkjumörkum undirorpið og við leysum það ekki með öllum heimsins skráningaræfingum sem við getum lagt til í lagafrumvörpum.