húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég var svolítið lengi að átta mig þegar hann var að tala um ömmur Sjálfstæðisflokksins af því að sjálf bíð ég eftir því að verða amma á næstu klukkutímum og vissi því ekki hvað hv. þingmaður var að vísa í, en ég næ því núna. Ég held nefnilega að það sé töluvert um það að ömmur, hvort sem þær eru í Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum, Flokki fólksins eða hvað, eða afar séu að leigja út íbúðir á neðri hæð, herbergi eða annað þess háttar. Ég held að það sé bara gott og fínt og ég veit ekki hvort við eigum nokkuð að vera með puttana í því. Það er kannski það sem ég er að benda á. Þetta frumvarp setur puttann í það.
Að því sögðu er ég hjartanlega sammála hv. þingmanni um það að við þurfum að koma í veg fyrir óboðlegt íbúðarhúsnæði, algerlega. En aftur segi ég að ég er ekki viss um að þetta plagg geri það. Það eru mínar áhyggjur. Ég held að við höfum reyndar tapað þeim leik fyrir töluverðu síðan þegar hið opinbera, þá á ég við sveitarfélögin, fór að leyfa sér að greiða húsaleigubætur jafnvel þótt ekki væri um gilda húsaleigusamninga að ræða vegna þess að það var svo mikill skortur á húsnæði á markaði. Ég held að vandinn liggi þar; að hið opinbera leyfi að niðurgreiða húsaleigu í húsnæði sem er ekki gilt íbúðarhúsnæði. Ég óttast að þeir sem ætli sér að bjóða upp á ólöglegt húsnæði — við höfum séð hræðileg dæmi um það, sérstaklega þegar erlendir verkamenn hafa verið settir í einhverjar holur í atvinnuhúsnæði, fyrirtækjum og þess háttar við algerlega óboðlegar aðstæður. Ég á erfitt með að átta mig á því að þetta nái utan um það en við höfum önnur tæki og tól til þess og þeim vil ég beita, af því að ég og hv. þingmaður getum verið algerlega sammála um að þetta á ekki að vera í lagi. En aftur á móti þegar kemur að leigufélögunum (Forseti hringir.) þá er leigufélagið Bjarg leigufélag sem verkalýðsfélögin reka og nú skortir mig að finna það sem Öryrkjabandalagið rekur. (Forseti hringir.) Þessi félög eiga að vera óhagnaðardrifin en samt heyrum við kvartanir um það að þau séu að hækka verð fram úr öllu hófi. (Forseti hringir.)
(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutíma.)