húsaleigulög.
Frú forseti. Ég fagna því að heyra að hv. þingmaður vilji taka á þessu og sýni vilja í ræðustóli Alþingis til þess að taka á málum. Það er greinilegt að einhverjar undirtektir eru hvað það varðar að taka á óboðlegu húsnæði, brunagildrum og öllu því. En ég spyr þá enn frekar: Hvernig er það gert nema þá aðeins að hafa einhverja skrá, eitthvert yfirlit? Hvaða tæki sér hv. þingmaður fyrir sér önnur en þau að vita hvar viðkomandi fólk býr og hafa einhverja skrá yfir hlutina, ef það er þá einhver meining að taka á þessu? Ef menn hafa engan vilja til að skrá hlutina eða vita um þá nákvæmlega þá leyfi ég mér að efast um það að raunverulegur vilji sé hjá hv. þingmanni til að taka á málum.