156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:51]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, hv. þingmaður, það er raunverulegur vilji til að takast á við raunveruleg vandamál. Til þess þarf þá raunveruleg tæki. Ég ætla að leyfa mér að efast stórkostlega um að þau dæmi sem hafa verið dregin upp í fjölmiðlum og meira að segja, ef ég man rétt, hafa hreinlega fallið dómsmál byggð á úttektum slökkviliðsins um aðila sem hafa byggt einhverja kofa í atvinnuhúsnæði fyrir erlenda verkamenn — haldið þið að þeir aðilar fari nú inn á heimasíðu HMS eftir þetta og skrái húsnæðið? Nei, auðvitað ekki. (Gripið fram í.) Það eru aðilar sem vilja brjóta lögin. Auðvitað getum við farið í það en það er fullt af lögum sem þessir aðilar eru að brjóta og þar þurfum við að hafa eftirlit. Aðilum sem eru að stunda slíka starfsemi er bara alveg sama um heimasíðu HMS.