156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:52]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er eiginlega með hreinum ólíkindum að hlusta á þennan málflutning sem hefur verið hér í þingsal varðandi breytingar á húsaleigulögum, sérstaklega þegar kemur að dómsdagsspám þegar minnstu tilraunir eru gerðar til að auka réttarstöðu og vernd fólks á leigumarkaði sem býr við hrikalegar aðstæður. Hér er talað um að það muni draga úr framboði og leiguverð hækka. Staðreyndin er sú að leiguverð er í dag komið upp fyrir þolmörk þess að fólk hreinlega standi undir því að geta greitt leigu. Við erum búin að ganga í gegnum þann fasa að leigufélögin hafa verið tilbúin til að henda fólki á götuna, öryrkjum, fjölskyldum með börn til að geta þrýst upp leigu. Við erum komin að þolmörkum. Leigan getur ekkert hækkað mikið meira.

Varðandi breytingar á skráningum, ef við horfum á þetta bara í samanburði við þau lönd sem við viljum bera okkur saman við, við erum að tala væntanlega um Norðurlöndin, getum tekið þýskumælandi löndin líka og mörg Evrópuríki, þá er gegnumgangandi strangt, sanngjarnt og gott regluverk í kringum leigumarkaðinn. En það er ekki að finna hér á landi. Og það að heyra t.d. hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur gagnrýna hæstv. ráðherra fyrir að hnýta í Sjálfstæðisflokkinn — sá sem hér stendur hefur unnið að því árum saman að bæta réttarstöðu leigjenda og ég veit alveg hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið gagnvart verkalýðshreyfingunni og öðrum hagsmunasamtökum sem hafa reynt að gera minnstu tilraunir til að auka réttarstöðu fólks á leigumarkaði. (Forseti hringir.) Ég veit alveg hvernig hann hefur unnið og hvaða hlutverki hann hefur gegnt í því að okkur hefur ekki tekist að komast betur áfram með þetta.