156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[16:55]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekkert hverju ég á að svara, ég heyrði ekki spurningu en ég heyrði ásakanir. Það er greinilegt að eina markmið þingmanna Flokks fólksins ásamt ráðherrum er að skíta út Sjálfstæðisflokkinn. Þetta hlýtur að vera allt okkur að kenna. Ég man ekki betur en hv. þingmaður hafi í fyrri störfum sínum unnið töluvert að því að koma á leigufélögum. Ég minnist þess að umræðan hafi mikið til snúist um skort á húsnæði hér á höfuðborgarsvæðinu. Hefur ekki verið bent á það að það hafi kannski verið helst í Reykjavíkurborg sem hefur skort á að byggðar séu íbúðir? Ef við erum sammála um það — en kannski erum ég og hv. þingmaður bara svo langt frá hvort öðru í hugmyndum okkar um hvernig lífið og tilveran er — en ef við erum sammála um að framboðsvandi sé stóra málið þá í guðanna bænum, hv. þingmaður, ekki kenna Sjálfstæðisflokknum um það. Ég veit að hv. þingmaður þekkir alveg ágætlega til húsnæðismarkaðarins á höfuðborgarsvæðinu. Það geri ég líka, komandi úr sveitarstjórn þegar ég settist á þing. Fasteignaverð hefur hækkað töluvert hér á síðustu árum, töluvert, og það er vegna þess að það er skortur á íbúðum. En sveitarfélögin í kringum Reykjavík hafa staðið sig mjög vel í því að fjölga lóðum. Þau hefðu mátt gera enn þá betur og þetta hefði mátt ganga allt saman miklu hraðar fyrir sig. Ég er ekki með neina dómsdagsspá, ég er einfaldlega að krefja þingmenn um það að gagnrýna það sem kemur hér fram, jafnvel þó að það sé frá þeirra samflokksmönnum. Það gerði ég þegar ég var hér í stjórnarmeirihluta. Horfa á þetta gagnrýnum augum, enga dómsdagsspá, (Forseti hringir.) bara velta fyrir sér hvort við séum raunverulega að leysa þann vanda sem hv. þingmaður málar hér upp.