húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég verð nú að viðurkenna að ég er aðeins að reyna að skilja málflutning hv. þingmanns. Það hljómar sem svo að hv. þingmaður sé andsnúin málinu vegna þess að þetta mál mun ekki fjölga íbúðum á fasteignamarkaði. Við fjölluðum áðan um fjármálastefnu. Er hún líka á móti fjármálastefnu af því að hún mun ekki fjölga íbúðum á fasteignamarkaði? Við erum að fjalla um mál sem varða dánaraðstoð; það fjölgar ekki íbúðum á fasteignamarkaði. Ætlum við að vera á móti öllum framfaramálum af því að þau fjölga ekki íbúðum á fasteignamarkaði? Hvurs lags eiginlega della er þetta? Hér erum við að fjalla um neytendamál, að standa vörð um rétt neytenda, leigjenda, til að tryggja það að húsaleigusamningar þeirra stökkbreytist ekki á fyrstu 12 mánuðunum. Um það fjallar þetta mál. Verið er að standa vörð um þann hóp sem út frá húsnæðismarkaðinum stendur hvað veikast. Það er markmið frumvarpsins. Mig langar að spyrja hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur: Er hún á móti þessari breytingu sem hér er lögð til, ekki að þetta fjölgi ekki íbúðum á markaði heldur bara þessari breytingu, að leigufjárhæð taki ekki breytingum á fyrstu 12 mánuðum tímabundinna leigusamninga? Er hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir á móti þeirri breytingu?