156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[17:02]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir svar við andsvari. Ég held að ég skilji aðeins betur hvert hún er að fara og hún varpaði upp ákveðnum spurningum sem eðlilegt er að fari fram greinargóð umræða um í nefndum og ég heyri ekki lengur sömu andstöðu við málið, alla vega varðandi þessa grein.

Hvað varðar skráningarskylduna þá vísaði hv. þingmaður sérstaklega til þessa frumvarps, að það gengi ekki nægilega langt til að fjölga íbúðum á fasteignamarkaði, og er áhugavert að skoða hvaða áhrif skráningarskyldan getur haft á yfirsýn á markaðinn; að fá yfirsýn yfir það hvar leiguíbúðir eru, koma í veg fyrir leigu á svörtum markaði og koma í veg fyrir að t.d. sé verið að leigja íbúðir með tímabundnum leigusamningum nú þegar verið er að þrengja að skilyrðum um hvar megi vera með tímabundna leigu. Upplýsingagjöf og heildarsýn varðandi stöðu húsnæðismarkaðarins mun að sjálfsögðu hjálpa stjórnvöldum við stefnumótun, að koma í veg fyrir ólöglegt athæfi og líka að tryggja að aðbúnaður leigjenda sé ásættanlegur. Ég ætla einfaldlega að spyrja: Telur hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir að slík skráning geti ekki verið hjálpleg varðandi það að taka á skammtímaleigu og svörtum markaði og að tryggja að við höfum betri yfirsýn til að taka betri langtímaákvarðanir á húsnæðismarkaði?