156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[17:18]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir góða ræðu. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum þar sem tekið er á almennri skráningarskyldu leigusamninga og breytingu leigufjárhæða. Ef við byrjum á mikilvægi þess að ná betri böndum á leigumarkaði hér á landi þá þekkjum við vel þá stöðu að megináherslan í samfélaginu hefur verið hingað til að koma fólki í eigin húsnæði, sem sagt að fólk fjárfesti í húsnæði og búi í því. Það eru auðvitað fjölmargar ástæður fyrir því að sú stefna hefur verið notuð en öryggi til búsetu er meira þegar þú átt fasteignina sem þú býrð í, það kemur í veg fyrir sífellda búferlaflutninga á milli hverfa og landshluta sem hefur oftar en ekki verulega neikvæð áhrif á stöðu barna á uppeldisárunum. Óþroskaður leigumarkaður íbúða er mikil áskorun og hefur verið fráhrindandi. Ef við horfum til landa í kringum okkur þá þekkjast mun stífari kröfur til þeirra sem leigja út fasteignir sem og hvaða fasteignir er mögulegt að leigja út. Þar er leiga almennt miklu algengari en hér og fólk velur það oftar að leigja húsnæði. Það er þrátt fyrir að það séu jafnvel meiri kröfur til umfangsins og til kerfisins.

Staðan hefur sem betur fer lagast á undanförnum árum. Mig langar að rifja upp, eins og hefur komið fram, að Bjarg íbúðafélag var stofnað af ASÍ og BSRB árið 2016 undir forystu þáverandi forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnssonar. Bjarg leigir út íbúðir til tekjulágra einstaklinga sem eru í erfiðustu stöðunni og þar er leiguverði haldið lágu og reksturinn er án hagnaðar og þetta er gríðarleg kjarabót fyrir fólk sem kemst að í þessu kerfi.

En, virðulegur forseti, hérna erum við að ræða leigumarkaðinn þar sem markmiðið er m.a. að ná utan um skráningar leigusamninga sem eru gerðir á markaði, bæði fyrir hið opinbera til þess að hafa áreiðanlega tölfræði en einnig til að auðvelda samanburð á leiguverði og þróun þess. Þetta er mjög mikilvægt, það er afar mikilvægt að umsamið leiguverð sé skráð og uppi á borðum því að þróun leiguverðs hefur síðan áhrif t.d. á vísitölu neysluverðs og þá skiptir miklu máli að tölur séu áreiðanlegar. En auðvitað skiptir líka miklu máli að leiguverð hækki ekki úr hófi til þeirra sem eru að leigja fasteignir.

Ég vil ítreka að samkvæmt 2. gr. frumvarpsins er verið að binda leiguverð á tímabundnum leigusamningum þannig að það sé fast í 12 mánuði. Það er afar mikilvægt fyrir leigutaka að það sé fyrirsjáanleiki leiguverðs á tímabundnum samningum og því sé haldið stöðugu fyrstu mánuðina. Hér er þó aðeins verið að tala um 12 mánuði. Íslenskt samfélag þarf að komast úr viðjum vísitölubindingar samninga að mínu mati.

Frú forseti. Varðandi skráningarskylduna og leiguskrána sem rekin er af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, þá hef ég sjálfur kynnt mér fyrirkomulagið sem þar er þó að ég hafi ekki sjálfur þurft að nýta mér þetta kerfi. Mikilvægur þáttur í því kerfi er að þar eru í boði nokkrir þjónustuaðilar sem veita t.d. aðgang að stöðluðum leigusamningum og þetta styrkir faglega framkvæmd og gerð leigusamninga þó að það útiloki auðvitað ekki aðrar leiðir. Fari leigusalar þessar leiðir við gerð leigusamninga þá skrást þeir sjálfkrafa í leiguskrá HMS. Þetta er mjög mikilvægt. Það er mikilvægt að halda utan um skrár og að leigusamningar séu faglegir og vel gerðir fyrir báða aðila.

Síðan vil ég, virðulegur forseti, bregðast aðeins við andsvari sem var hér fyrr í dag þar sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir ræddi um samningaviðræður á vinnumarkaði. Því miður sé ég hana ekki hér í salnum en ég veit að hún er að hlusta. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður sagði að þingmönnum hefði jafnvel verið hótað í nefndarstörfum hv. velferðarnefndar. Líklega tók hv. þingmaður bara þannig til orða en þetta sagði hún hér og þetta hefur væntanlega verið sagt í tengslum við umræðu um þessar breytingar á leigumálum, fasteignaleigu, og aðkomu ríkisins að kjarasamningum á þeim tíma. Sjálfur kannast ég ekki við að hafa viðhaft uppi slíkar hótanir alla vega og ágætt að það sé sagt hér og kannast auðvitað ekki við að slíkt hafi verið gert. Ég ætla bara að ítreka það.

En ég vil aðeins fá að ræða þessi mál í stuttu máli. Hafandi verið í forystuhlutverki innan verkalýðshreyfingarinnar í hátt í 20 ár þá þekki ég býsna vel til mikilvægis kjarasamninga fyrir íslenskt launafólk. En við skulum ekki gleyma því að íslensk fyrirtæki búa jafnframt að því að hafa skýrar reglur til að vinna eftir. Réttindi og skyldur sem hvíla á fyrirtækjum og launafólki eru mjög skýrar hér á landi en þríhliða samningar hafa reynst samfélaginu gríðarlega mikilvægir á undanförnum áratugum enda þurfa þessir hlutar samfélagsins svo sannarlega að vinna saman og við höfum náð miklum bótum á t.d. húsaleigulögum vegna kjarasamninga og vegna dugnaðar innan verkalýðshreyfingar.

Frú forseti. Umræðan hér í dag hefur snúist um að skipulagður leigumarkaður muni fækka íbúðum á leigumarkaði, sem sagt að eftir því sem reglurnar verða stífari þá muni íbúðum fækka á leigumarkaði. Þá langar mig að velta því upp að ef leiguíbúðum fækkar þá hlýtur íbúðum að fjölga sem eru til sölu. Mun það ekki hafa jákvæð áhrif á verðlagningu fasteigna? Jú, ég myndi telja að svo væri. En ég hef ekki áhyggjur af því að skýrari reglur muni valda því að íbúðum á leigumarkaði fækki. Ég tel okkur vera á réttri leið hérna, að skipuleggja leigumarkaðinn og styrkja stöðu leigjenda, enda er það oftar en ekki fólk sem er í viðkvæmari stöðu en aðrir hér á landi sem er á leigumarkaði. Það er mín skoðun að leigumarkaður ætti að vera aðgengilegri og hann ætti að nota í meiri mæli en þá þurfa aðstæður auðvitað að bjóða upp á það og vera traustar og stöðugar.

Frú forseti. Þetta mál er mjög mikilvægt fyrir leigutaka á fasteignamarkaði og ég styð það og hlakka til að fá málið til meðferðar í hv. velferðarnefnd og að það verði síðan að lögum í kjölfar vinnu nefndarinnar og þingsins. Þetta er til hagsbóta fyrir leigutakann, mjög mikilvægt mál.