156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[17:27]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M):

Frú forseti. Ég ætlaði ekki að koma hingað upp sérstaklega til að ræða þetta annars ágæta frumvarp nema ég sá ástæðu til að koma upp sérstaklega til að ræða og gagnrýna framkomu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar í andsvari sínu við hv. þm. Bergþóri Ólasyni hér fyrr, þó að ég sé ekki sérstaklega að koma til þess að verja hv. þm. Bergþór Ólason, ég veit að hann er fullfær um það sjálfur, heldur hreinlega fyrir að nota setninguna að Miðflokkurinn í heild sinni eigi að skoða afstöðu sína. Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur. Ég vil benda á að það hafa engar ályktanir verið gerðar um þetta málefni af þingflokknum í heild sinni eða það rætt sérstaklega innan þingflokksins. Það er alveg hægt að spyrja hv. þingmann: Eru allir þingmenn Flokks fólksins sammála um allt og segja þeir bara alltaf já, elskan við öllu? Hafa þeir ekki misjafnar skoðanir eða eru stundum ósammála? Þannig er það alla vega innan okkar flokks, við erum ekki alltaf sammála og líklega er Flokkur fólksins þá eini flokkurinn á þingi sem er eitthvað öðruvísi en allir aðrir í því. Ég tel það bara mjög eðlilegt að menn komi hér upp, og ég hélt að við værum á þingi til þess, og gagnrýni eða séu með aðra vinkla á málum, hvort sem við erum í þessum eða hinum flokki. Þannig að ég frábið mér að allir séu settir undir sama hatt af því að einhver einn er ekki sammála eða er með einhvern annan vinkil. Ég er sammála hv. þm. Bergþóri Ólasyni um sumt í þessu frumvarpi. Ég er að vísu sammála þessu 12 mánaða lágmarki. En ég hvet hv. þingmann, en ekki flokkinn í heild sinni, til að líta í eigin barm þegar hann arkar hér í þingsal eins og hann sé með kláðaduft í buxunum, með háværum búkhljóðum og stunum og dæsi í hvert sinn sem hann er ekki sammála einhverjum eða öfugt.

Þar fyrir utan langar mig að koma með annan vinkil í sambandi við skráningarskylduna. Ég dreg í efa, þótt ég ætla ekki annað en að þetta sé gert með góðum vilja og trú, að skráningarskyldan muni ekki verða þess valdandi að fólk sem er nú þegar í ólöglegu húsnæði muni koma fram á sjónarsviðið. Og þá spyr ég bara hreinlega hvort ekki væri betra að gera þessar breytingar í gegnum lög um húsaleigubætur. Ég kom inn á húsaleigubæturnar í ræðu í fyrstu eða annarri viku minni hér á þingi. Þeir sem t.d. leigja og eru í húsnæði sem er með mörg herbergi og leigja út sérherbergi heyra ekki undir húsaleigubætur, fólk þar fær ekki húsaleigubætur. Ég velti þessu upp og bið kannski meiri hlutann að skoða þetta. Ef við hugsum bara um þennan skelfilega bruna sem varð á Bræðraborgarstíg þá var það stórt hús með mörgum herbergjum og þar voru allir erlendir og ég get ekki fullyrt það en einhvern veginn grunar mig að þar hafi ekki verið nein skráning vegna þess að herbergi eru ekki inni í húsaleigubótakerfinu. Mig langar endilega að biðja nefndina að skoða hvort þetta væri ekki betri lausn á málinu, að húsaleigubæturnar myndu frekar leysa þetta vandamál og koma í veg fyrir að leigt sé t.d. svona húsnæði þar sem fólk er að borga bara svart eða er látið skrifa undir leigusamninga sem eru ekki löggiltir.