156. löggjafarþing — 21. fundur,  27. mars 2025.

húsaleigulög.

224. mál
[17:34]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skal sannarlega taka þetta til skoðunar hjá mér. Ég held mig samt við það sem ég segi en ég tek þetta sannarlega til skoðunar og tek það til mín. Það er svo sem engu við þetta að bæta annað en að ég bara hvet okkur eindregið til að skoða þessa skráningarskyldu. Ég gæti ekki samþykkt hana sjálf eins og hún liggur fyrir núna í þessu frumvarpi, tel að hún geri meira gagn í gegnum húsaleigubótakerfið.