fæðingar- og foreldraorlof.
Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Frumvarpið er lagt fram til að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA hvað varðar innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 883/2004 frá 29. apríl 2004, um samræmingu almannatryggingakerfa. Markmiðið með frumvarpinu er fyrst og fremst að koma til móts við foreldra sem starfa á innlendum vinnumarkaði og hafa starfað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Samkvæmt gildandi lögum er ekki heimilt að taka mið af tekjum sem foreldri hefur aflað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna.
Forseti. Með frumvarpinu er lagt til að bæta við undantekningu frá meginreglu laganna um viðmiðunartímabil tekna vegna greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Er lagt til að þegar foreldri hefur starfað hér á landi skemur en fjóra mánuði á viðmiðunartímabilinu en að öðru leyti starfað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins sé heimilt að miða greiðslur við þá almanaksmánuði sem foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði eftir flutning til landsins fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að skýra ákvæði laganna nánar hvað þetta varðar, mat á þátttöku foreldris á innlendum vinnumarkaði, í því skyni að bregðast við úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 485/2022 frá 18. nóvember 2022, þar sem bent var á að lögin væru ekki fyllilega skýr.
Forseti. Eins og fram hefur komið er með frumvarpi þessu fyrst og fremst stefnt að því að koma til móts við foreldra sem starfa hér á landi en hafa starfað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Ég hef trú á því að þessar breytingar séu til þess fallnar að styrkja enn frekar fæðingarorlofskerfi okkar og stuðli að betra jafnvægi milli atvinnuþátttöku og fjölskyldulífs hjá þeim foreldrum sem frumvarpið nær til. Því tel ég afar mikilvægt að frumvarpið verði samþykkt hér á Alþingi til hagsbóta fyrir foreldra á sama tíma og staðið er við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.