fæðingar- og foreldraorlof.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Mér líður alltaf svo vel þegar ég finn þessa samlegð og samhygð og þegar við erum í rauninni að deila heila og stundum slá hjörtu okkar alveg í takt, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, og þá líður mér voða vel. Hvað lýtur að fæðingarstyrknum þá er hann í rauninni settur fram með reglugerð þannig að ég býð bara hv. þingmanni að hjálpa mér að smíða þá reglugerð svo einhver bragur verði á ef hún telur að það verði til bóta. Það væri bara mjög ánægjulegt. En já, bókun 35, það er alveg satt. Þarna deilum við heila eins og ég nefndi hér áðan. Það er alltaf gott að viðurkenna það ef maður hefur haft rangt fyrir sér og eftir ítarlegar skoðanir og hugsun um velferð borgaranna og neytendavernd borgaranna þá liggur það algjörlega ljóst fyrir að bókun 35 er ekkert nema til hagsbóta og ég mun með mikilli gleði styðja hana í gegnum þingið.