156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

áhrif hækkunar veiðigjalda.

[15:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. atvinnuvegaráðherra hefur kynnt áform um verulega hækkun veiðigjalda. Þessar breytingar virðast hafa verið unnar í flýti án samráðs við þau samfélög sem reiða sig einna helst á sjávarútveg og án greiningar á áhrifum á atvinnulíf í sjávarbyggðum eða afkomu fólks sem hefur lífsviðurværi sitt af greininni. Það skiptir miklu máli að það ríki góð sátt um sjávarútveginn í okkar samfélagi, þessa grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er alltaf tilbúinn til að leita leiða til að betrumbæta reglur í umgjörð atvinnugreinarinnar á skynsaman hátt en þar verður að stíga varlega til jarðar og það verður að vanda til verka. Því vekur það undrun að ekkert mat hefur verið lagt á afleidd áhrif á ríkissjóð eða atvinnustig. Samt hefur ráðherra talað um sanngirni og réttlæti í þessu kerfi. Þetta kann að leiða af sér minni afleiddar tekjur og færri störf sem framkalla minni skatttekjur og aukið atvinnuleysi.

Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig samræmist það vandaðri stjórnsýslu og réttlætissjónarmiðum að leggja fram slíkar breytingar án nauðsynlegs undirbúnings og samráðs við þau samfélög og atvinnuvegi sem breytingarnar snerta hvað mest?