áhrif hækkunar veiðigjalda .
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur kærlega fyrir fyrirspurnina og ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni. Sjávarútvegurinn er ein okkar mikilvægasta atvinnugrein og það skiptir máli að það sé vandað til verka og það ríki sátt um hann. Ég hygg að hv. þingmaður viti það jafn vel og ég að um það atriði sem varðar réttlátan arð þjóðarinnar af nýtingu þessarar mikilvægu auðlindar, um það atriði hefur ekki ríkt sátt. Það hefur verið gap á milli þjóðar og útgerðar, ef svo má á að orði komast. Síðan hafa stjórnvöld skipað sér einhvers staðar þar á milli. Þessi vinna sem farið var í til að leiðrétta veiðigjöldin, til þess raunverulega að ná niður þeim vilja sem ég trúi að löggjafinn hafi haft þegar lögin voru sett, að einn þriðji af áætluðum hagnaði, tekið tillit til tekna, raunverulegs aflaverðmætis og útgjalda, rynni til þjóðar og tveir þriðju til útgerðarinnar. Þessi leiðrétting er einfaldlega til þess gerð að það raungerist.
Hvað varðar greiningar þá var farið í þær, þ.e. áhrifin á útgerðina, á einstaka útgerðarfélög. Frítekjumarkið var hækkað og þetta er nú í samráðsgátt. Ég er sannfærð um að það er enginn hér inni sem telur það hlutverk stjórnmálanna eða þeirrar sem hér stendur sem ráðherra málaflokksins að svara því ef viðbrögð útgerðarfyrirtækja verða að loka vinnslum úti á landi. Það er algerlega, og ég ætla bara að leyfa mér að segja það, það er galin framkvæmd í atvinnugrein sem malar gull. Við erum þegar með töluverðan fjölda af vinnslum án útgerða sem kaupa sinn fisk á markaði og ef þessi breyting sem nú er í vinnslu nær fram að ganga munu vinnslur sem eru í eigu útgerðarfélaga áfram geta stuðst við verð sem þau ákvarða sín á milli. Þannig að áhrifin þar á ráðast af því hvernig útgerðin bregst við þessari eðlilegu leiðréttingu.