áhrif hækkunar veiðigjalda.
Virðulegi forseti. Svar ráðherra dregur ekki úr áhyggjum mínum. Veruleg hækkun veiðigjalda getur haft veruleg áhrif á umsvif og afleidd umsvif í sjávarútvegi og þar með á aðrar tekjur ríkissjóðs, svo sem tekjuskatt, tryggingagjald og virðisaukaskatt. Það liggur engin heildargreining fyrir á þessum áhrifum, ekki einu sinni mat á því hvort þessi gjaldtaka skili ríkissjóði raunverulega meiri tekjum til lengri tíma. Þá er heldur ekkert tillit tekið til yfirvofandi tollastríðs, sem mun fyrirsjáanlega hafa neikvæð áhrif á sölu í greininni, eða yfirstandandi áfalla eins og loðnubrests.
Því spyr ég aftur: Telur ráðherra forsvaranlegt að leggja fram tillögur um stórkostlega auknar álögur á atvinnugrein án þess að fyrir liggi hver nettóáhrifin verði á ríkissjóð? Og ef ríkisstjórnin hefur enga hugmynd um þau áhrif, (Forseti hringir.) er þá ábyrgt að taka slíka áhættu með almannafé bara til þess að slá pólitískar keilur?