áhrif hækkunar veiðigjalda.
Herra forseti. Aftur þakka ég fyrirspurn og þykir hv. þingmaður, formaður Sjálfstæðisflokksins, fullsvartsýnn í máli sínu og ég vona að það þýði ekki að Sjálfstæðisflokkurinn sé að skipa sér í sveit með stórútgerðinni í því að það séu eðlileg viðbrögð við þessari eðlilegu leiðréttingu að láta það koma niður á fólkinu á landsbyggðinni og hóta lokun á vinnslu umfram það sem efni standa til. Við skulum hafa það í huga að hér hefur vinnslum fækkað jafnt og þétt síðustu ár án þess að eðlileg veiðigjöld komi til.
Hvað varðar hins vegar málefnalegar áhyggjur af loðnubresti sem nú hefur raungerst enn og aftur og mögulegum neikvæðum áhrifum tollastríðs — ég tel nú reyndar að við eigum að geta verið vongóð um að svo verði ekki með okkar góðu vöru, ef marka má viðbrögð þeirra fjölmörgu aðila í Bandaríkjum sem ég hef átt þess kost að ræða við — þá hafa öll slík áhrif augljóslega áhrif til lækkunar veiðigjalds vegna þess að við vitum að það reiknast af hagnaði. Þegar vel árar þá hækka gjöldin sem þjóðin fær fyrir auðlindina (Forseti hringir.) og þegar illa árar í útgerðinni þá kemur minna. Það er eins og það á að vera.
Mig langar að bæta við, (Forseti hringir.) þótt ég viti að hæstv. forseti reiðist mér, um áhrif á tekjustofna að það er þannig að veiðigjöld eru frádráttarbær frá tekjuskatti þannig að þetta er nú ekki fulltvöföldun á veiðigjöldum.
(Forseti (IngÞ): Ég minni hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að tíminn er ein mínúta í síðari umferð.)