156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

aðgerðir stjórnvalda vegna tollahækkana.

[15:11]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. forsætisráðherra til hamingju með 100 daga afmælið. Af því tilefni var haldinn enn einn blaðamannafundurinn með nýja þríeykinu til að fara yfir enn eitt vandamálið, að þessu sinni áform ríkisstjórnarinnar um skatta- og gjaldahækkanir næstu árin. En ég ætla ekki að spyrja um þann faraldur, gjaldafaraldurinn sem hefur staðið of lengi og er greinilega ekki í rénum, ég ætla að spyrja um forvarnir, því að forseti Bandaríkjanna er ekki síður áhugasamur um tolla en hæstv. forsætisráðherra er um gjöld og skatta. Ég hef áður spurt hæstv. ráðherra og fannst þá frekar lítið um svör og ítreka því spurninguna núna og ekki að tilefnislausu því að á miðvikudaginn næstkomandi, ekki á morgun heldur hinn, er skattadagurinn mikli í Bandaríkjunum, sem forsetinn þarlendi hefur hlakkað mjög til, að því er virðist, og ætlar að tilkynna um nýja tolla, m.a. á Evrópusambandið. Því ítreka ég fyrri spurningar til hæstv. ráðherra um hvað ríkisstjórnin hafi gert í því að tryggja stöðu Íslands í þessu ástandi; í fyrsta lagi forvarnir gagnvart því að tollar verði lagðir á Ísland af hálfu Bandaríkjanna í misskilningi, til að mynda ef menn héldu að Ísland væri hluti af Evrópusambandinu, sem það er alls ekki. Vöruskiptajöfnuður Íslands og Bandaríkjanna er Bandaríkjunum mjög í vil og því alveg ástæðulaust að refsa Íslandi með tollahækkunum. En hvað hafa íslensk stjórnvöld, ríkisstjórnin, gert til þess að útskýra stöðu Íslands og koma í veg fyrir slys í þessu efni? Og verði slysin, hvernig mun þá ríkisstjórnin bregðast við?