aðgerðir stjórnvalda vegna tollahækkana.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta fyrirspurn og mikilvæga. Við lifum sannarlega á mjög sérstökum tímum þar sem fólk sem er talsmenn frelsisins víða er einmitt að ráðast í aðgerðir sem gagngert hindra viðskiptafrelsi víða um heim. Þess vegna er þetta bara virkilega mikið áhyggjuefni. Ríkisstjórnin og þá kannski sérstaklega hæstv. utanríkisráðherra og ég höfum staðið í ströngu einmitt í slíkri hagsmunagæslu, að halda til haga þessari stöðu sem hv. þingmaður vekur athygli hér á, að við erum vissulega með vöruskiptahalla við Bandaríkin og ættum því tæknilega séð ekki að vera á umræddum lista yfir lönd sem þarf að leiðrétta stöðuna við. En síðan erum við auðvitað líka með mjög virkt sendiráð í Bandaríkjunum, sem hefur staðið sína plikt, og við erum með sendiherra og fólk í utanríkisþjónustunni sem hefur víða verið með alla anga úti í samtölum við þingmenn og fólk í stjórnsýslunni til að halda okkar hagsmunum á lofti, sem eru verulegir, og já, að halda því til haga að við erum vissulega ekki innan Evrópusambandsins ef hugmyndin er sú að þessir tollar eigi fyrst og fremst að beinast að Evrópusambandinu.
Ég vil hins vegar líka taka fram, vegna þess að við höfum átt í mjög virku samtali við Evrópusambandið líka, í slagtogi til að mynda við Noreg, um mikilvægi þess að ef það koma einhverjir móttollar, ef svo má segja, og það verður tollastríð milli þessara tveggja aðila, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, að við lendum ekki þar á milli. Þar er svolítið áhugaverð sú staða sem er komin upp hér á Íslandi, að þessi mikla álframleiðsla sem er hér á landi, og fólk gæti haft áhyggjur af því að myndi rata inn í slíka tolla, er allt í einu orðið gífurlegt hagsmunamál fyrir álfuna vegna þess að þetta er mjög mikilvægur málmur í til að mynda varnarstarfsemi. Við erum í öðru sæti þegar kemur að álframleiðslu sem endar inni á Evrópusambandssvæðinu. Þannig að við stöndum bara í allt annarri stöðu en við gerðum áður og þetta hefur gert það að verkum að fólk er farið að taka eftir og passa upp á að við séum undanskilin og við höldum því áfram til haga.