aðgerðir stjórnvalda vegna tollahækkana.
Herra forseti. Ég hef tekið eftir þessu áður hjá hæstv. ráðherrum og talið allsérstakt að þeir virðast ekki síður hafa áhyggjur af því að Evrópusambandið gæti lagt á okkur refsitolla til þess að refsa Bandaríkjunum. Ég geri nú ráð fyrir að Evrópusambandið viti að Ísland er ekki aðili að Bandaríkjunum en það er kannski fullt tilefni til að minna þá á það, eins og mér heyrist að hæstv. ráðherrar hafi reynt að gera. En hvað hefur hæstv. forsætisráðherra eða eftir atvikum aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar gert til að nálgast bandarísk stjórnvöld beint? Mér skilst til að mynda að forsætisráðherrar allra hinna Norðurlandanna hafi rætt við forseta Bandaríkjanna, nema hugsanlega Finnlands en þar fer forseti landsins með utanríkismál og hann hefur tvisvar rætt við Bandaríkjaforseta. Hefur hæstv. forsætisráðherra reynt að ná sambandi við forseta Bandaríkjanna? Og ef ekki, hyggst hann þá gera það?