156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

aðgerðir stjórnvalda vegna tollahækkana.

[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Það er sjálfsagt mál að skýra það varðandi aðkomu Evrópusambandsins í þessu að áhyggjur hafa auðvitað snúið að því að ef það verða takmarkanir á þeirra útflutningi þá gætu þeir ákveðið að setja innflutningstakmarkanir til að koma í veg fyrir að þeirra eigin svæði lendi í vandræðum. Þetta er alþekkt í umræðunni og þess vegna höfum við haldið þessu til haga, m.a. vegna þess að 2018 þá kom upp þessi umræða um að Ísland myndi falla undir umrædda tolla. Þetta er bara gífurlegt hagsmunamál og þarna hefur okkar hagsmunagæsla nú þegar skilað árangri vegna þess að fólk er meðvitað um stöðuna, þannig að við skulum ekki gera lítið úr því.

Varðandi bein samskipti þá ber þess að geta að utanríkisráðherra hefur verið í sambandi við utanríkisráðherra Bandaríkjanna og átt samtöl við þessa aðila í gegnum utanríkisþjónustuna. En ég hef ekki enn þá rætt við forseta Bandaríkjanna. Það mun koma að því og það er ekkert því til fyrirstöðu að eiga slíkt samtal. Það mun bara taka tíma að ákveða hvenær slík samtöl eigi sér stað. Við erum til að mynda mjög líklega að fara að hittast á NATO-fundi í sumar og eiga samtal og það er ekkert því til fyrirstöðu mín vegna að við ræðum saman um málin en ég hef heldur ekki talað við alla forsætisráðherra heimsins, þetta er auðvitað bara gert í áföngum, þ.e. að ég funda með forsætisráðherrum með símtölum. (Forseti hringir.) Þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu og það er bara tímaspursmál hvenær opnast á slíkt samtal.