156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

lokun Janusar endurhæfingar og úrræði fyrir ungmenni með geðrænan vanda.

[15:21]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að taka þetta mál upp. Þetta er flókið mál sem á sér langa sögu en heilbrigðisráðuneytið var með samning við Janus hér á árum áður, en frá árinu 2011 hefur sá samningur verið hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Síðan árið 2020 var gerður samningur, tilraunasamningur, milli VIRK, ráðuneytis og Janusar þar sem heilbrigðisráðuneytið greiðir 25% af kostnaði og VIRK 75%. VIRK ákvað að slíta þessum samningi á liðnu ári og hefur útskýrt það, t.d. í Kastljóssþætti á dögunum, af hverju það samstarf gekk ekki upp. Það hefur verið reynt á liðnum árum, byrjaði 2020, að ná samningum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og þá var þetta úrræði metið á 400 milljónir og samningar tókust ekki. Síðan eftir að VIRK sagði upp samningnum er búið að eiga sér stað samtal aftur við heilsugæsluna og Landspítala. Þetta var áður en ég kom að. Eftir að ég tók við þessu starfi þá hef ég rætt við Reykjalund og reynt að koma á samningum þar á milli. En þetta hefur ekki gengið upp og það hefur ekki náðst samkomulag. En það er fullur vilji til að ekki verði þjónusturof og VIRK er búin að bjóða öllum þessum aðilum og aðstandendum, ef svo ber undir, til samtals þar sem fundin verða úrræði fyrir hvern og einn og samið við aðila um það sem snýr að geðheilbrigðisþjónustu þar sem það þarf.