156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

lokun Janusar endurhæfingar og úrræði fyrir ungmenni með geðrænan vanda .

[15:23]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hæstv. ráðherra kom inn á einmitt umræddan Kastljóssþátt og skýringar á því af hverju samstarfið hefði ekki gengið upp. En það samtal var einhliða, það vantaði algjörlega hlið starfsfólks Janusar endurhæfingar og ég veit að þar er viðhorfið með öðrum hætti. En það sem kom á óvart núna var að heyra hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra henda fram hálfkláruðum hugmyndum að því hvað tæki við þegar hún var spurð hvort ríkisstjórnin hefði tryggt að hópurinn lenti ekki á milli úrræða. Það undirstrikar í rauninni það sem liggur fyrir, að það er ekkert annað úrræði tilbúið. Það er ekki búið að ákveða, það er ekki búið að þróa eða greina þarfir hópsins af hendi ráðuneytanna eða VIRK. Sú vinna er vissulega að fara af stað í þessari viku en Janus endurhæfing er úrræði sem tók mörg ár að þróa, 25 ár. Það á ekki að bjóða þessum ungmennum upp á þessa óvissu eða fjölskyldum þeirra. Þetta er þróun sem Janus hefur þróað og hún virkar og hún verður tekin niður án tillits til þess hvort eitthvað annað sé tilbúið. (Forseti hringir.) Þetta eru börn sem hafa þegar þurft að kljást við flóknar áskoranir og brotalamir í kerfinu. Og önnur mun dekkri (Forseti hringir.) og alvarlegri hlið sem hefur ekki fengið nægilegan hljómgrunn er raunverulega lífshættan sem skapast af lokun Janusar endurhæfingar.

Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Er hæstv. ráðherra reiðubúin að tryggja það að allir þeir sem eru í dag í þjónustu Janusar muni njóta sömu þjónustu og þeir fá í dag við þessar breytingar?

(Forseti (IngÞ): Ég minni aftur á að ræðutíminn í óundirbúnum fyrirspurnum er ein mínúta í síðari umferð.)