156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

lokun Janusar endurhæfingar og úrræði fyrir ungmenni með geðrænan vanda.

[15:25]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er þannig að ráðuneytið hefur ekki gögn um hverjir þessir einstaklingar eru en það hefur VIRK og ætlunin er, eins og ég var búin að nefna, að kortleggja þann hóp og bjóða til viðtala og finna úrræði sem þarf fyrir hvern og einn og það verður tryggt.

Það er margt um þetta mál að segja og eins og ég nefndi þá hefði ég gjarnan viljað sjá þetta úrræði t.d. hjá Reykjalundi, því það er þannig að þeir sem reka Janus vilja fara að bregða búi, þannig að þetta samtal er búið að eiga sér stað en margar ástæður liggja því að baki að þetta samkomulag hefur ekki tekist. Það er líka alveg ljóst að það þarf að bæta þjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, auðvitað og það er eitt af forgangsmálum okkar og sérstaklega þegar kemur að einstaklingum sem eru með einhverfu, eins og margir hjá Janusi.