156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[15:29]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Já, það eru nokkrir dagar liðnir síðan þetta mál kom upp, að fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra tók þá ákvörðun sjálf að segja af sér. Við ræddum þetta töluvert hérna fyrir viku síðan þar sem nákvæmlega þessi spurning barst til mín og ég er ekkert að fara að svara henni með allt öðrum hætti en þá, enda er staðan enn þá sú sama. Í lok dags er það auðvitað hennar ákvörðun, í þeim aðstæðum sem hún finnur sig í, að segja af sér. Ég hef hins vegar líka sagt og mér er það að meinalausu að segja það hér aftur að það var ekkert eðlilegt við viðbrögð þáverandi ráðherra á sínum tíma þegar hún ákveður að vera í sambandi við umræddan aðila sem allir hafa nú fengið veður af hver er, heyrði í henni í síma, birtist heima hjá henni og þetta veit hún, hún gerir sér fullkomlega grein fyrir því. Og algerlega óháð því hvað gerist hér fyrir rúmlega 35 árum síðan þá er sú hegðun auðvitað athugaverð sem birtist í kjölfarið. Ég hef sagt það áður og mér finnst ekkert óeðlilegt við að hún hafi séð að sér í þeirri aðstöðu. Það breytir því ekki að þegar svona mál kemur upp, sem er mjög persónulegt, þá er það ekki mitt að svara fyrir það hvers vegna fólk ákveður að stíga út úr mjög erfiðum aðstæðum, þegar athygli fjölmiðla beinist að persónulegum aðstæðum fólks og þetta er farið, sama hvort það sé rétt eða ekki, sjálfsagt eða ekki, réttlátt eða ekki, að trufla störf ráðherra og störf ríkisstjórnarinnar upp að því marki að hún treystir sér mögulega ekki til áframhaldandi starfa. En það er hennar að segja frá sinni persónulegu ákvörðun. Ég bið einfaldlega hv. þingmann að beina þeirri spurningu frekar til þessa aðila. En það vill einfaldlega þannig til að umræddur ráðherra er ekki enn þá starfandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.