156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[15:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Nú svarar hæstv. forsætisráðherra því að það hafi verið eftirmálar, þ.e. ekki fréttin sjálf heldur það að þáverandi ráðherra vogaði sér að hafa samband við manneskju úti í bæ sem hafði samband við hana, ekki um stjórnarmálefni, ekki um nokkurt einasta stjórnarmálefni, ekki einu sinni um pólitík heldur hennar persónulegu mál sem varðaði barn hennar. Það telur hæstv. forsætisráðherra undarlegt í hæsta máta. Það liggur hins vegar fyrir og blasir við að ríkisstjórninni barst hótun utan úr bæ og ríkisstjórninni voru settir afarkostir. Utan úr bæ var kallað eftir því að ráðherra viki. Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra sem er verkstjóri þessarar ríkisstjórnar: Hvernig má það vera að hótanir í garð ríkisstjórnarinnar og ráðherra vegna barns ráðherra verði til þess að forystumenn ríkisstjórnarinnar sitji klukkutímum saman yfir ráðherranum og með þeirri niðurstöðu að ráðherrann segir af sér? Og í þessu ljósi fannst hæstv. forsætisráðherra það einboðið að þáverandi ráðherra hlypi eftir slíku. Það er pólitískt mat og varðar forsætisráðherra en ekki þennan ráðherra. Á þingið og þjóðin að sitja undir því að ríkisstjórnin láti undan hótunum (Forseti hringir.) utan úr bæ og fyrirskipunum um hverjir skipi ráðherraembætti? Því þarf hæstv. forsætisráðherra að svara. (Forseti hringir.) Og telur hæstv. forsætisráðherra það hafa styrkt ríkisstjórnarsamstarfið og stjórnmál á Íslandi að svona hafi þessu máli lyktað?