afsögn mennta- og barnamálaráðherra.
Forseti. Ég verð að viðurkenna að ég kann ekki alveg að meta þann tón sem er settur hérna fram. Það hafa hvergi komið fram merki um það að einhver hafi verið tilneyddur til að segja af sér. Hér er verið að saka fólk um frekar alvarlega þætti. Ég sagði heldur ekki áðan að Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefði sagt af sér út af þessari hegðan sinni. Ég einfaldlega vakti athygli á því að það hafi verið eitt af því sem var til umræðu en það var hennar mat í þágu sinna eigin málaflokka að stíga til hliðar. Ég verð að segja alveg eins og er að ég kann ekki að meta að því sé stillt upp með þeim hætti að það sé snúið upp á handlegginn á einhverjum til að segja af sér. Ég endurtek það sem ég sagði hér áðan: Þetta er ákvörðun þáverandi ráðherra í þágu sinna málaflokka að stíga til hliðar. Við skulum virða það og gefa henni það að hún las stöðuna með þeim hætti, í staðinn fyrir að búa til einhvern annan málflutning í sambandi við þetta mál. (SÁA: Svaraðu spurningunni. ) Ég er að svara spurningunni, (Forseti hringir.) hv. þingmaður, og segja að ég kann ekki að meta þennan málflutning því það er (Gripið fram í.) einfaldlega ekkert til í honum eins og ég hef ítrekað svarað.
(Forseti (IngÞ): Ég bið hv. þingmenn um að vera ekki með framíköll.)