156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

viðbrögð við neyðarástandi og verkefni Rauða krossins, 3 dagar.

[15:34]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Nú hefur Rauði krossinn á Íslandi hrundið af stað átakinu 3 dagar þar sem landsmenn eru hvattir til að undirbúa sig ef neyðarástand skapast. Lögð er áhersla á að fólk geti verið án rafmagns og vatns í a.m.k. þrjá daga og geti sömuleiðis búið sig undir að netsamband rofni eða það sé símasambandslaust. Fólk á að vera með svokallaða heimilisáætlun, viðlagakassa sem inniheldur útvarp, rafhlöður, kerti, prímus, vasaljós, verkfæri, skyndihjálparkassa o.fl. Ég stórlega efast um það, virðulegi forseti, að landsmenn séu almennt með þennan búnað til staðar og því er verkefnið þarft. En þessi umræða hefur verið í gangi á Norðurlöndunum í töluverðan tíma og ég hef áhyggjur af því að við séum að hreyfa okkur hægt. Nú efast ég ekkert um að Rauði krossinn á Íslandi er vænlegur samstarfsaðili til að taka þátt í forvarnaverkefni en ég held að það sé mikilvægt að við mælum árangurinn af svona verkefni svo það nái til allra í auglýsingum. Um verkefnið kemur fram að það er Rauði krossinn og almannavarnir sem að því standa en síðan er Rio Tinto einnig aðili að verkefninu sem styrktaraðili. Ég ætla nú að láta það liggja á milli hluta þó að mér þyki það ansi sérstakt.

Spurning mín til hæstv. dómsmálaráðherra snýr auðvitað að því hvort við séum að gera nóg, ekki bara varðandi undirbúning almennings heldur einnig varðandi neyðarbirgðir og með vísun í þá skýrslu sem var unnin hér ekki alls fyrir löngu og snýr að stöðu okkar varðandi neyðarbirgðir eldsneytis, íhlutun í orkuframleiðslu, stöðu lyfja hér á landi o.s.frv. Þess vegna hef ég áhuga á að eiga orðastað við ráðherrann hvað þetta varðar.