156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

viðbrögð við neyðarástandi og verkefni Rauða krossins, 3 dagar.

[15:36]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Hún er mikilvæg og kjarnast kannski í orðunum: Erum við að gera nóg? Erum við að gera nóg? er spurning sem íslensk stjórnvöld ættu að spyrja sig, sem stjórnvöld á Norðurlöndunum, í Evrópu allri og reyndar heiminum öllum ættu að vera með hugann við. Erum við að gera nóg? Þá myndi ég vísa til þess, af því að hv. þingmaður nefndi almannavarnir, að á Íslandi búum við yfir reynslu af því að takast á við alvarleg áföll. Það gerum við vegna þess við hvaða aðstæður við búum. Við höfum reynslu af alvarlegum áföllum vegna náttúrunnar og við höfum innbyggða þætti í okkar kerfi sem hafa það hlutverk beinlínis að verja öryggi þjóðarinnar allrar í gegnum almannavarnir, í gegnum löggæsluna okkar, í öðru samhengi, í gegnum landhelgisgæslu. En af því að ég skil spurninguna sem svo að þingmaðurinn sé með hugann við þær aðgerðir sem ríkisstjórnin er í dag að taka í þessum efnum myndi ég vilja nefna hið augljósa, að þegar ný ríkisstjórn var sett á laggirnar var jafnframt stofnaður sérstakur ráðherrahópur um öryggi og varnarmál. Í samhengi við þá fyrirspurn sem þingmaðurinn var með; öryggisþættirnir, þar eru hlutir eins og neyðarbirgðir, raforka og öll grunnþjónusta í landinu undir. Þessi ráðherrahópur á í reglubundnu samtali og samráði. Utanríkisráðherra hefur auk þess talað skýrt til hvaða aðgerða ríkisstjórnin er að grípa og hvaða skref ríkisstjórnin er að stíga, sérstaklega hvað varðar varnarmálin öll. Einfalt svar: Ég hugsa að það sé aldrei nóg að gert. En ríkisstjórnin er sannarlega meðvituð um ábyrgð sína og hlutverk og er að gera það sem til er ætlast.