156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

viðbrögð við neyðarástandi og verkefni Rauða krossins, 3 dagar.

[15:38]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið og ég veit að henni og mörgum í þingsal ásamt ríkisstjórn er umhugað um þessi mál. Þess vegna vil ég benda á annað: Það kom frétt frá Norðurlöndunum, upphaflega frá Finnlandi sem síðan þingmenn á norska þinginu tóku upp, að það geti verið mikilvægt að hafa hér á landi verslanir sem geti starfað án þess að þær séu nettengdar eða eftir atvikum til þess berist rafmagn. Þetta er svona gott dæmi um hvernig Norðurlandaþjóðirnar eru að hugsa. Ég get ekki séð að við getum verið einhvern veginn fyrir utan það. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort hún sé sammála mér hvað það varðar. Er ekki nauðsynlegt fyrir okkur að læra af því sem Norðurlöndin eru að gera og fara sömu leið, tryggja það að í neyðarástandi getum við fengið nauðsynjar, m.a. til þess að tryggja hér matvælaöryggi?