156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

viðbrögð við neyðarástandi og verkefni Rauða krossins, 3 dagar.

[15:39]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Í samhengi við hvort ríkisstjórnin sé að gera nóg þá vorum við í dag að kynna fjármálaáætlun þar sem grunnstefin eru öryggi og innviðir. Ég get sem dómsmálaráðherra ekki sleppt því að nefna að við erum að efla löggæslu. Við erum að fjölga í lögreglu. Það er frumskylda ríkisins, fyrsta skylda ríkisins hvað varðar öryggi. Þarna erum við að taka mjög afgerandi skref og munum vonandi halda því áfram út kjörtímabilið. Löggæsla er í mínum huga algjör grunnþjónusta við fólkið í landinu. Það er verið að semja varnarmálastefnu og verið að smíða hana. Hér hefur verið settur á þingmannahópur í þeim tilgangi. Það er auðvitað hlutverk ríkisins að gæta að öryggi hvað varðar matvæli um leið. Síðan má hafa skoðanir á því með hvaða hætti það er gert. Þar get ég alveg játað það að Viðreisn og Framsóknarflokkurinn ganga ekki alltaf hönd í hönd. En það er hiklaust hlutverk ríkisins að tryggja þessa öryggisþætti án þess kannski að við séum beinlínis komin út í það að reka matvöruverslanir.