óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra.
Herra forseti. Mig langaði bara að benda hér á að það virðist vera orðinn taktur hæstv. ráðherra í fyrirspurnatímum að kveinka sér undan spurningum, að þyki þær ósanngjarnar, dragi fram þá mynd að það sé verið að ráðast að fólki úti í bæ sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér þó að ekkert slíkt eigi við í spurningunni. Svona í ljósi þess að þingið eyðir töluverðum fjármunum í að veita okkur þingmönnum aðgengi að alls konar rétttrúnaðarnámskeiðum þá vil ég bara beina því til hæstv. forseta að styðja ríkisstjórnina í einhvers lags sjálfsstyrkingarvegferð. Það myndi bæði auka líkurnar á því að hæstv. ráðherrar svari þeim fyrirspurnum sem fyrir þá eru lagðar hér í fyrirspurnatímum og sömuleiðis held ég að það myndi bara bæta líðan ráðherra ríkisstjórnarinnar í stað þess að við þurfum hér í hverjum fyrirspurnatímanum á fætur öðrum að sitja undir því að ráðherrar kunni ekki við þær einföldu fyrirspurnir sem fyrir eru lagðar, í stað þess að svara þeim bara.