156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[15:43]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Málið hlaut ítarlega umfjöllun í 1. umræðu, reyndar mjög ítarlega, og gekk eftir það undir heitinu Stóra plasttappamálið. Síðan barst málið inn í umhverfis- og samgöngunefnd. Í umhverfis- og samgöngunefnd kemur í ljós að hér er um afar einfalda innleiðingu að ræða. Allar umsagnir voru jákvæðar og atvinnulífið hafði þegar innleitt þessa breytingu. Ég vil því segja það, herra forseti, að ég mun greiða þessu frumvarpi atkvæði mitt og ég vonast til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði á sömu línu.