156. löggjafarþing — 22. fundur, 31. mars 2025.
hollustuhættir og mengunarvarnir.
100. mál
Herra forseti. Þingflokkur Miðflokksins mun að sjálfsögðu greiða atkvæði gegn þessu máli. Þetta er enn eitt óþarft málið af færibandinu í Brussel. Hér er verið að leysa vandamál sem ekki er til staðar og ég bara treysti á að fleiri í þessum sal en þingmenn Miðflokksins greiði atkvæði gegn þessu óþarfa máli. Við munum allir sem einn, þingmenn Miðflokksins, greiða atkvæði gegn því.