156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[15:46]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra, kannski ætti maður frekar að segja ráðherra kirkjumála í þessu samhengi, fyrir að taka þessa umræðu hérna með okkur í dag. Þjóðkirkjan er hluti af okkar sögu og menningu í gegnum aldir og hefur verið órjúfanlegur hluti af lífi flestra Íslendinga og það má segja að kirkjan sé máttarstólpi í íslensku samfélagi og hún hefur verið það um aldir. Vissulega hefur kirkjan tekið allverulegum breytingum í gegnum tíðina, sem eðlilegt er, með breyttum tíðaranda o.s.frv. Þjóðkirkjan hefur í gegnum allan þennan tíma lagt alveg gríðarlega mikið til menningar og lista og það er vissulega vandfundið það afl innan íslensks samfélags sem hefur lagt annað eins af mörkum þegar kemur að menningu og listum. Kirkjustarfið er um allt land og hefur kirkjan verið með mjög þéttriðið net víða um landið en vissulega hefur í gegnum árin þetta þéttriðna net sem við þekktum hér þegar við vorum yngri — við skulum segja að það hafi heldur betur gisnað. Það er ákveðin þumalputtaregla þess efnis að það eigi að vera að lágmarki einn og hálfur klukkutími í næsta prest ef áföll dynja yfir og ég held að við séum komin á þann stað að þetta verðum við að endurskoða. Það er nú einu sinni þannig, held ég, að tími einyrkja í svona starfi er liðinn. Við þekkjum það, við sem erum alin upp úti á landi, ég tala nú ekki um í sveitum, að oft á tíðum er það þannig að presturinn er eini embættismaðurinn á mjög stóru svæði. Presturinn er sá sem er kallaður til þegar áföll verða og presturinn er kallaður til á gleðistundum sömuleiðis og það er nú þannig að þeir ungu prestar sem hafa tekið til starfa í dag eru að kikna undan því álagi að taka að sér prestsstarf úti á landi. Menn hafa ekki þetta net sem presturinn sækir í. Það þurfa allir að hafa þetta net því að það er vandfundið, held ég, erfiðara og flóknara starf en að vera prestur og vera þjónn kirkjunnar. Kirkjan stendur öllum opin, alveg sama hverrar trúar þeir eru og það er mjög mikilvægt að við höldum því þannig og við horfum til þess að þjónar kirkjunnar geti sinnt þeirri köllun sinni sem þeir eru kallaðir til og geti sömuleiðis sinnt því mikilvæga starfi að geta gripið inn í, verið til staðar þegar áföll verða.

Okkur hættir til að horfa alltaf til þessara erfiðu hluta en kirkjan er miklu meira heldur en bara fermingar og jarðarfarir. Við megum ekki gleyma því að kirkjan er sömuleiðis að sinna alveg gríðarlega mikilvægu starfi sem snýr að æskulýðsstarfi, sömuleiðis er kirkjan að byggja upp og er ein af þessum stofnunum sem horfir á mannlífið og tekur þátt í því og reynir að gera mannlífið betra.

Á þessum litla tíma sem ég á eftir ætla ég að koma inn á eitt gríðarlegt verkefni sem kirkjan stendur frammi fyrir. Það er að viðhalda öllum þessum byggingum, kirkjum vítt og breitt um landið og safnaðarheimilum sömuleiðis, og þetta er gríðarlega þungur rekstur hjá litlum söfnuðum víða um land. Vissulega hafa mörg þrekvirkin verið unnin hvað það varðar að viðhalda þessum byggingum en við verðum að horfa til þess að hérna er um að ræða mjög mikilvægar menningarminjar og það er skylda okkar sem þjóðar að standa á bak við söfnuði úti á landi og viðhalda þessum kirkjum. Það er lykilatriðið. Vissulega eru þær ekki allar í mikilli notkun (Forseti hringir.) en þetta eru menningarverðmæti sem við verðum að standa vörð um.