Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil nú í upphafi þakka hv. þingmanni, vini mínum, Þórarni Inga Péturssyni, fyrir frumkvæðið að umræðu um þjóðkirkjuna. Ég veit að staða kirkjunnar í samfélaginu eru honum hugleikin, enda prestssonur. Faðir hans, séra Pétur Þórarinsson, var virtur og vinsæll prestur sem lést því miður langt fyrir aldur fram vegna sykursýki sem hann glímdi við frá barnsaldri. Mér þykir vænt um þessa umræðu.
Forseti. Síðustu ár hafa verið gerðar talsverðar breytingar á aðkomu stjórnvalda að starfsemi þjóðkirkjunnar. Ný heildarlög um þjóðkirkjuna voru samþykkt hér í þessum sal árið 2021 þar sem sjálfstæði kirkjunnar var aukið til muna. Þau lög héldu áfram með sömu þróun og höfðu átt sér stað með gildistöku laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar frá 1997 og með þeim lögum var gerð sú stóra breyting að litið er á þjóðkirkjuna frá þeim tíma sem sjálfstætt trúfélag í stað þess að hún væri skilgreind sem opinber stofnun sem reyndin var fram að þeim tíma. Í dag er það Kirkjuþing sem fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar, þar með talið fjárstjórnarvald, nema lög kveði á um annað.
Nú horfir staða dómsmálaráðherra gagnvart þjóðkirkjunni öðruvísi við en var hér um árabil þegar margir forverar mínir í embætti voru jafnframt titlaðir kirkjumálaráðherra. Því miður, myndi faðir minn segja, guðfræðiprófessorinn. Hann er ekki hrifinn af þessari breytingu og finnst titillinn mun veglegri þegar kirkjumálin eiga þar hlut að máli. Ég fer vitaskuld ekki í ágreining við hann um það.
Forseti. Allt frá kristnitökunni árið 1000 hefur menning íslensku þjóðarinnar verið samofin kristinni arfleifð og kristnum gildum. Þetta er okkar saga og við eigum ekki að vera feimin við þá sögu. Þetta er einfaldlega saga íslensku þjóðarinnar og texti þjóðsöngsins okkar, svo ég taki handahófskennt dæmi, speglar þessi tengsl og tengslin eru auðvitað víða greinileg. Það hafa lengi verið náin tengsl milli ríkis og þjóðkirkju. Í stjórnarskránni segir t.d. að hin evangeliska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Íslandi og skuli ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Af þessari stjórnarskrárgrein má ráða að ríki og þjóðkirkja séu sannarlega ekki eitt. Þau eru ekki eitt en stjórnarskráin okkar mælir fyrir um það að ríkið eigi að styðja og vernda þjóðkirkjuna. Ég vil nefna að árið 2012 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þriðja spurningin sem þjóðin svaraði þar var eftirfarandi: Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi? Þar var leitað eftir afstöðu kjósenda, til íslensku þjóðarinnar, um það hvort áfram yrði ákvæði í stjórnarskrá um þjóðkirkjuna. Já sögðu 57,1%. Nei sögðu 42,9%. Afstaðan var skýr.
Í dag eru um 55% landsmanna skráð í þjóðkirkjuna. Hér verður í mínum huga að veita því eftirtekt í þessu samhengi hversu mjög samfélagsgerðin hefur breyst á liðnum árum nú þegar tæp 20% þjóðarinnar eru innflytjendur. Þá vitum við að einstök mál hafa gert það að verkum að fólk hefur sagt sig úr þjóðkirkjunni.
Það er mín skoðun að þjóðkirkjan sinni mikilvægu starfi. Þjóðkirkjan sinnir mikilvægu starfi þar sem tekið er á móti landsmönnum öllum, óháð trúarafstöðu eða skráningu. Þetta er mikilvægt atriði. Þjóðkirkjan þjónustar alla landsmenn sem til hennar leita, allt frá vöggu til grafar, heldur úti félagsstarfi, barna- og æskulýðsstarfi til starfsemi meðal eldri borgara. Þjóðkirkjan sinnir mikilvægri sálgæslu um landið allt. Presturinn þjónar mikilvægu hlutverki á erfiðum stundum í lífi okkar. Það þekkjum við sem höfum upplifað sorgina. Presturinn er til taks þegar samfélagið hefur misst einn úr sínum röðum og þarf á samveru að halda. Þegar þung áföll hafa riðið yfir, ég nefni snjóflóðin sem dæmi, er hlutverk prestsins augljóst í samfélaginu. Hann tekur utan um fólkið við þær aðstæður.
Ég ætla í seinni ræðu að ræða betur um greiðslur en þjóðkirkjan fær greiðslur úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. Um innheimtu og skil sóknargjalda er mælt fyrir í lögum um sóknargjöld en við vitum það líka að á liðnum árum hafa gjöldin verið skert þannig að verulega hefur bitið í. Alls hafa 16 sinnum komið inn bráðabirgðaákvæði sem kveða á um lægri sóknargjöld en reikniregla laganna gerir ráð fyrir.
Ég vildi í lokin nefna að síðasta haust var skipaður starfshópur (Forseti hringir.) til að endurskoða þetta fyrirkomulag. Ég bíð eftir niðurstöðu þar um áður en frekari skref verða tekin. Ég held áfram umræðunni hér í síðari ræðu (Forseti hringir.) en vil fyrst og síðast þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mikilvæga umræðu.