156. löggjafarþing — 22. fundur,  31. mars 2025.

Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.

[15:57]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Kristin trú er órjúfanlegur hluti íslenskrar sögu og menningar. Mig langar því að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir að setja þetta mál á dagskrá. Mikill meiri hluti Íslendinga og annarra íbúa hér á landi er kristinnar trúar. Við eigum að vera óhrædd við að verja kristin gildi og fræðslu um þau enda eru þau grunngildi íslensks samfélags.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa gjarnan tekið þessi mál upp hér og annars staðar. Meðal annars lögðum við hér ítrekað fram frumvarp undir forystu Birgis Þórarinssonar um að auka veg kristinfræðikennslu í grunnskólum. Eins og sagði í því frumvarpi helgast áherslan á kristna trú umfram önnur trúarbrögð af menningu okkar og tengslum við trúna. Það má í raun segja að núverandi fyrirkomulag endurspegli grunnskólalögin ekki nægilega þar sem segir að starfshættir grunnskóla skuli mótast af kristinni arfleifð íslenskrar menningar og hvað þá aðför og neikvætt viðhorf meiri hlutans í Reykjavíkurborg gagnvart kristni. Meiri hlutinn hefur m.a. alið á sundurlyndi hjá þjóðinni með því að gera kirkjuheimsóknir skólabarna tortryggilegar, jafnvel á aðventunni, og þrengt að trúfrelsi barna með sérstökum reglum. Þessar sérreykvísku reglur eru til þess ætlaðar að sá fræjum tortryggni í Reykjavík um eðlilegt og heilbrigt samstarf skóla og trúfélaga.

Virðulegi forseti. Mig langar að koma inn á mikilvægi þjóðkirkjunnar í dreifbýli og viðhald kirkna og safnaðarheimila. Þessa umræðu þekkjum við vel sem höfum barist fyrir sóknargjöldunum hér á Alþingi. Við Sjálfstæðismenn tókum þann slag ítrekað á síðasta kjörtímabili með formennsku í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, m.a. sú sem hér stendur. Söfnuðir þjóðkirkjunnar hafa liðið fyrir skerðingu á sóknargjöldum sem kemur niður á mikilvægu starfi og viðhaldi húsnæðis og það er miður að við þurfum að rífast um þetta hér á hverju ári.

Að lokum langar mig til að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir sitt góða innlegg inn í þessa umræðu.