Staða og framtíð þjóðkirkjunnar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni, fyrir að opna umræðuna um stöðu þjóðkirkjunnar og þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir góð svör. Þjóðkirkjan er ekki aðeins hluti af sögu okkar, hún er lifandi arfleifð, þátttakandi í lífi fólks um allt land. Hún hefur mótað menningu okkar, siðferði og samfélagsvitund í gegnum aldir og haldið áfram að veita skjól, styrk og samstöðu þegar mest á reynir. Það hefur ekki síst komið skýrt í ljós á Austurlandi síðustu tvö ár. Þar hafa samfélög þurft að takast á við erfið áföll, snjóflóð, aurskriður, slys, ótímabær dauðsföll og langvarandi óvissu. Ásamt öðrum fagaðilum hafa prestar kirkjunnar verið ómetanlegir í þeirri ógn og óvissu. Þeir hafa staðið með fólki, hlustað, haldið utan um og verið til staðar þegar lífið riðlast. Kirkjan stendur með opið hús. Þar er ekki biðtími eftir samtali. Fólk þarf ekki að leggja út fjármagn fyrir stuðningnum og það ræður sjálft ferðinni. Prestarnir eystra hafa verið gríðarlega sterkur hlekkur í keðjunni fyrir austan síðastliðin ár og verið hluti af því að halda samfélaginu saman. Fyrir það erum við þakklát.
Í dreifbýli er kirkjan oft mikilvægur hluti af hjarta samfélagsins, samkomustaður, minningarstaður og vonarstaður. Áskorun er að standa undir rekstri kirkna, safnaðarheimila og tryggja laun þeirra sem sinna þessum mikilvægu þjónustuhlutverkum í nærumhverfi fólksins eins og organista, kirkjuvarðar og fræðslu. Við verðum líka að muna að í samfélaginu okkar býr trúarleg fjölbreytni. Mikilvægi þjóðkirkjunnar og rætur hennar útiloka ekki virðingu fyrir öðrum trúarskoðunum, þvert á móti. Þjóðkirkjan snertir okkur öll, hvort sem við sækjum messur reglulega eða ekki. Hún stendur vörð um sameiginleg gildi og sameinar fólk í gegnum lífsins stærstu stundir og fyrir það ber okkur öllum að sýna virðingu, ábyrgð og stuðning.